|
 |
|
Sunday, June 14, 2009
Holgeir: Shit, It's raining. Again... Eva: Well, at least it's keeping my mint plant on the balcony alive. It seems to be doing surprisingly well. Holgeir: That's because I've been watering it. Eva: Ah, that explains it....
Eru það ekki alkar sem eiga ekki að leggja út í samband fyrr en þeir geta haldið plöntu lifandi? Á ég að taka þetta til mín?
Posted at 08:15 am by evadagbj
Permalink
Tuesday, June 09, 2009
 ...nýja manninn í lífi mínu, herra Floyd. Á meðan situr herra Marlowe í festum í bílskúrnum hennar ömmu og er sárt saknað. Meira að segja þó Floyd hafi það frammyfir hann að vera bleikur... Annars er mín loxins komin í Þýsku fyrir útlendinga, það gekk ekki lengur að hafa bara orðaforða sem einskorðaðist við kaffipantanir.... Þetta er ágætur kúrs með allra þjóða kvikindum og gengur fínt. Verst að eftir því sem þýskan batnar fer enska stafsetningin mín af einhverjum ástæðum versnandi. Það passar þá náttúrulega til að ég er að fara að taka enskupróf fyrir skólaumsóknir eftir viku. Nema hvað.
Posted at 07:04 am by evadagbj
Permalink
Wednesday, May 27, 2009
reyndi að drepa mig í gær. Eins og ég er búin að vera að syngja því lof. Laun heimsins, jamm. Það gerði ss. heljarinnar rok í Hamborg með þeim afleiðingum að öll frjókorn borgarinnar (eða, jæja...) fóru af stað og Eva lagðist í rúmið um miðjan dag með klósettrúllu, beinverki og alla glugga lokaða. Góði kosturinn var hinsvegar að nú er ég næstum búin að klára Before they are hanged e. Joe Abercrombie, sem ég mæli algerlega með (maður þarf að byrja á The blade itself, samt- þetta er náttúrulega þríleikur). Þetta var nú samt allt betra í dag, en hundurinn Stella fékk lítið út úr göngutúrnum sínum. Ég þorði ekki með hana í parkið, þar sem eru BLÓM, þannig við tróðum malbik í staðinn. Svo fórum við Einar og Agnes og tékkuðum á ítölskum stað sem við erum búin að vera forvitin um. Hann var fínn, nógur hvítlaukur í pastanu, en aðal plús stigin fékk hann samt fyrir skreytingarnar, net með plast humrum og myndir af ítalska landsliðinu- jamm.
Posted at 12:35 pm by evadagbj
Permalink
Sunday, November 16, 2008
Eins og vanalega kom móðir mín að tómum kofunum þegar hún bað um jólaóskir, enda ekki farið að nálgast jól smkv. mínu dagatali... En ég lofaði ss að setja óskalista á netið við fyrsta tækifæri og hér er hann:
Aðallega langar mig í eitthvað að lesa. Bækur og höfundar sem hafa vakið forvitni mína nýlega eru: Thomas Pynchon (bara e-ð sniðugt e. hann...) Alan Moore- Voice of the Fire eða firstu bækurnar af League of Extraordinary Gentlemen Leif Enger- So Brave, Young and Handsome Nick Harkaway- Gone Away World og svo The Complete Ace Trucking Co, volume I eftir John Wagner og Alan Grant, gefið út af Rebellion Publishing. Ljóðabækur e. Robert Frost eða Sean O'Brien
Ég veit ekki hvað er að koma út á Íslandi, en eitthvað sniðugt á íslensku væri líka vel þegið, hvort sem það er nýtt eða gamalt. T.d. e-ð e. Guðrúnu Evu Mínervudóttur (ekki Yosoy samt, hún er til heima..) eða Kjötbærinn e. Kristínu Eiríks.
Nú, ef einhver veit svo um einhverja sniðuga bók sem ég ætti algjörlega að lesa, þá telst hún hér með á óskalistanum.
Ef ekki bók, væri ég til í: "Húð" utan um tölvuna mína (17 tommu) Nýjan maskara (brúnan) Nett heyrnartól (svona pirrandi stinga inn í eyrun gaura) Ilmvatn- Jean Paul Gaultiere Classique eða Naomi Campbell Cat Deluxe
Uh... gleðileg jól :)
Posted at 04:18 pm by evadagbj
Permalink
Tuesday, November 11, 2008
Heyrði þetta útundan mér við barborðið um daginn: “Well, I wouldn't mind taking the tube, myself. It is really a great deal faster (berist fram faaster). But, of course, it depends on what sort of shoes Her Ladyship will be wearing...” Og þá hvarf barþjónnin á dulafullan hátt undir barborðið svo virðulegi herramaðurinn sæi hana ekki skella uppúr... Þetta er í annað skipti sem ég heyrir fólk tala um vini sína sem "Lady" eitthvað. Hélt í allri hreinskilni að þetta væri ekki gert svona dags daglega, og á pöbbnum af öllum stöðum. Annars er ég að hrista af mér leiðinda flensu. Haustið (eða er kominn vetur?) er búið að vera mj. milt, en mér tókst að ná mér í pest samt. Kenni um athyglisverðri hrekkjavökunótt í Winchester með Örnu... Löng saga. Svo er ég að reyna að manna mig upp í að finna nýja íbúð fyrir mánaðarmótin. Ég er búin að koma mér svo vel fyrir með karlaskaranum mínum að ég tími varla að flytja. En held ég drulli mér héðan samt, þetta er aðeins of mikið úthverfi....
Posted at 10:00 am by evadagbj
Permalink
Tuesday, October 21, 2008
Huh... það er búinn að vera pöbb í húsakynnum Ship and Shovell í 300 ár. Geri aðrir betur. Já, og ég er búin að finna út úr nafninu. Shovell er semsagt hvorki skófla né sker, heldur Sir Cloudesley Shovell, úr flota hennar hátignar. Hvað hann hefur með pöbbinn að gera hef ég ekki fundið út en mig grunar að þá hafi kannski bara vantað einhvern svona sjóara kall til að skíra eftir....
Posted at 11:39 am by evadagbj
Permalink
Ég er búin að vera að spá mikið í framtíð minni sem kaffibarþjónn/barþjónn/ vinnnviðhvaðsemútvegarmérleigu/ listamaður og finnst hún frekar leiðinleg á að líta. Ég er ekki frá að það væri ágætt að hafa “dayjob” sem ég gæti í alvöru haft áhuga á og ja hver veit, jafnvel nýtt mér menntun mína.... Ég er búin að komast að því að íbúar evrópska efnahagssvæðisins sem taka QTS (qualified teacher status ) hér fá ekki bara öll skólagjöld greidd heldur líka uppihaldsstyrk. Ekki alveg nóg til að lifa af en nóg til að þurfa ekki að taka námslán. Þetta er tæplega árs nám og hljómar hreint ekki illa... Hm, ég gæti allavgea ímyndað mér að það sé skemtilegra að kenna myndlist heldur en að hella bjór. Reyndar held ég að það gæti verið drulluskemmtilegt að kenna myndlist... Aníweis, bara pælingar enn sem komið er.... Ég þarf líka að komast að því í hvaða löndum þetta QTS er gilt, hvort það er bara Bretland eða hvort þetta er alþjóðlegt. Kennarar eru skilst mér svolítið eins og hjúkkur, þá vantar alls staðar. Gæti verið að þetta væri leið til að komast í vinnu í ekki EU löndum eins og Nýja Sjálandi eða BNA? Hm.... Klikka út með því að kvóta email frá Lauru, sem er leikkona, rithöfundur og bókasafnsfræðingur: “Having been there and done that whole artistwithmanydayjobs thing, I can't resist giving you a tiny piece of advise. Find a 'day job' that you really like; one that makes you feel good about taking up space on the planet. Nothing will end your artistic career faster than having a day job that sucks your energy and dries up your soul. Think of finding that job like finding your life partner. Do you want to be with someone who's demanding and jealous of your art and makes you feel small, or someone who inspires you and makes you feel strong and competent? The job that pays the rent is your partner, body and soul, in your artistic career. Whew, ok, off the soap box now. Sorry. That's just something I wish somebody'd told me when I went off to be an actress...” Laura er ekki vitlaus, ha?
Posted at 11:31 am by evadagbj
Permalink
Sunday, October 19, 2008
Við sitjum í eldhúsinu og hlustum á Abba (já, Abba). "Oh my! At Waterloo Napoleon did surrender..." raular Wes. "Bloody British," muldrar Nic hinn franski. "Whenever they win something they always got to make a big deal out of it."
Posted at 06:25 pm by evadagbj
Permalink
Wednesday, October 08, 2008
"So, where are you from?"
Spyr maður um leið og hann réttir mér kreditkortið sitt. "Iceland," svara ég. "Oh wow!" segir hann. "I'm surprised that you're actually taking credit cards at the moment, then!" Ég hef líka fengið setningarnar: "Iceland, yeah? Well, good time to get out, huh? I mean your whole country is bankrupt, innit?" og "Well, cheers love. And best of luck with the economy!" Hvað varð eiginlega um "Do you know Björk?"?
Posted at 05:24 pm by evadagbj
Permalink
Tuesday, September 30, 2008
á Cricklade Ave í kvöld. Rico (hinn Panamíski) er loksins búinnn að fá landvistarleyfi og kemur 20. okt. Ég held að Wes sé búinn að hringja í hálft England með fréttirnar, og lesa bréfið frá útlendingaeftirlitinu amk 20 sinnum. Miðað við vesenið sem þetta er allt saman búið að vera þá er kannski ekki skrítið ef hann þarf að lesa það nokkrum sinnum í viðbót...
Posted at 12:03 pm by evadagbj
Permalink
|
|
|